liljaorsteinsdottir Kokomo er íslenskur leikjavefur með 55 leikjum fyrir fólk á öllum aldri, allt frá krossgátusjúklingum og orðanördum til grunnskóla- og menntaskólanema. Þar má finna krossgátur, orðaleiki, þrautir, spil og fræðsluleiki í íslensku, stærðfræði, náttúrufræði, samfélagsfræði og tónfræði.
Í 38 leikjum birtist ný þraut á hverjum degi og hægt er að bera árangurinn saman við vini. Krossgátubankinn geymir 452 gátur í fjórum þyngdarstigum og yfir 2.000 eldri þrautir bíða í safninu.